Þórsmörk Náttúruperla Íslands
Þórslaug
Þórslaug er heit laug í Húsadal sem bætir við þá ánægjulegu reynslu að vera þar. Munið eftir að taka sundfötin með ykkur!
Stórkostleg fjöll, jöklar og stórfljót, einstakur gróður og veðursæld.
Hópferðir eftir pöntunum.
Áætlunarferðir daglega frá 15. júní - 14. september með Kynnisferðum.
Þórsmörk
er ein af fegurstu náttúruperlum Íslands, umlukin náttúrulegum
farartálmum svo sem fjöllum, jöklum og jökulám. Það er því ekki ráðlegt
að fara í Þórsmörk nema á vel útbúnum jeppum og rútum.
Þórsmörk
markast af Krossá í suðri, Markarfljóti í vestri, Ljósá í norðri og
Mýrdalsjökli í austri. Mikil veðursæld er í „Mörkinni“, enda er hún í
skjóli jökla og veðurfar oft mjög frábrugðið því sem gerist í
nágrannasveitum.
Frá
skálunum í Húsadal er hægt að fara merktar gönguleiðir í ýmsar áttir.
Stutt leið er í Sóttarhelli, Markarfljótsgljúfur og Sönghelli svo
eitthvað sé nefnt. Stígur er af Valahnjúk niður í mynni Langadals.
Þaðan má fara inn dalinn yfir í Húsadal eða yfir Krossá á göngubrú
undir Valahnjúk yfir í Goðaland og Bása. Upp úr botni Húsadals er
greiðust leið yfir í Hamraskóga og þaðan áfram „Laugaveginn“ sem er 50
km stikuð gönguleið yfir í Landmannalaugar. Einnig er góð gönguleið úr
botni Húsadals yfir Slyppugilshrygg og áfram meðfram Tindfjallagili að
Tröllakirkju en þaðan er góð leið á Rjúpnafell og Mófell. Hægt er að
halda áfram hringinn og koma niður Stangarháls og ganga aurana meðfram
Krossá yfir í Langadal.
Gönguleiðin milli
Landmannalauga og Þórsmerkur er meðal vinsælustu gönguleiða á Íslandi
enda löngum nefnd „Laugavegurinn“. Fjölmargir ferðalangar hafa notið
þjónustu Kynnisferða til að komast með áætlunarbílnum í
Landmannalaugar, gengið þaðan yfir í Þórsmörk, gist í Húsadal og tekið
síðan áætlunarbíl þaðan til Reykjavíkur.
Skálaverðir
eru í Þórsmörk allt sumarið og gefa öllum þeim sem koma í Húsadal í
Þórsmörk ráðleggingar og upplýsingar varðandi Þórsmörk. Hægt er að fá
upplýsingar varðandi gönguleiðir hjá skálaverði í Husadal í Þórsmörk.
Við bjóðum alla þá sem koma, velkomna í Húsadal í Þórsmörk og óskum þeim ánægjulegrar dvalar.
Merkursel
Í Merkurseli eru á neðri hæðinni fimm kojur fyrir 10 manns, eitt
herbergi með einni koju fyrir 2, eldunaraðstaða með nauðsynlegustu
áhöldum og borðbúnaði fyrir um 35 manns. Einnig er þar salernisaðstaða.
Á svefnlofti er gisting fyrir um 20 manns á dýnum.
Samtals er gistirými fyrir 32.
Vestri
Vestri skiptist í þrjú herbergi, tvö innri herbergin eru með fjórar
kojur hvort, samtals fyrir 16 manns. Í framherberginu eru fjórar kojur
tvíbreiðar fyrir 8-16 manns, fer eftir því hvort einn eða tveir eru í
hverju rúmi. Í þessu herbergi er einnig eldunaraðstaða með
nauðsynlegustu áhöldum og borðbúnaði fyrir um 35 manns. Salernisaðstaða.
Samtals gistirými fyrir 24-32.
Austri
Austri er með 13 tveggja manna herbergjum. Þar er bæði boðið upp á
svefnpokagistingu og uppábúin rúm. Í húsinu er salernisaðstaða. Og
eldunaraðstaða í Auraseli.
Samtals gistirými fyrir 26.
Smáhýsin Norðurgarður 1-8
Í Húsadal eru 8 smáhýsi sem taka 4-5 í gistingu hvert hús. Þegar komið
er inn í forstofu er eldunaraðstaða á hægri hönd. Þar eru
nauðsynlegustu eldhúsáhöld og borðbúnaður fyrir 6 manns, eldunarhella
og vaskur með köldu vatni. Fyrir innan er herbergi með tveimur kojum,
neðra rúmið í annarri kojunni er tvíbreitt. Í herberginu er einnig borð
og stólar fyrir 6 manns.
Samtals gistirými fyrir 32-40.
Veitingahúsið Dalsel
Í Húsadal er veitingaskáli sem tekur um 120 manns í sæti. Þar er boðið
upp á kaffi og léttar veitingar ásamt léttvíni og bjór. Einnig eru í
boði veislur fyrir sérhópa.
Aðstöðuhúsið Aurasel
Þjónustuhús stendur við hliðina á Veitingahúsinu. Húsið skiptist í tvo
hluta, öðru megin í húsinu er eldunaraðstaða fyrir einstaklinga og
litla hópa með nauðsynlegustu eldhúsáhöldum og borðbúnaði fyrir um
25-30 manns. Í hinum hluta hússins eru salerni, sturtur og saunabað.
Upplýsingar um bókanir og verð má finna með því að smella hér eða með því að hringja í Bandalag Íslenskra farfugla í síma 552 8300.