Þórsmörk 

Þórsmörk er ein af náttúruperlum Íslands. Stórkostlegt landslag, fjöll, jöklar og stórfljót, einstakur gróður og veðursæld.

Hópferðir eftir pöntunum.

Áætlunarferðir daglega frá miðjum júní –til miðs september með Kynnisferðum.
Þórsmörk er ein af fegurstu náttúruperlum Íslands, umlukin náttúrulegum farartálmum svo sem fjöllum, jöklum og jökulám. Það er því ekki ráðlegt að fara í Þórsmörk nema á vel útbúnum jeppum og rútum.  Þórsmörk markast af Krossá í suðri, Markarfljóti í vestri, Ljósá í norðri og Mýrdalsjökli í austri. Mikil veðursæld er í Þórsmörk , enda er hún í skjóli jökla og veðurfar því oft mjög frábrugðið því sem gerist í nágrannasveitum.

Frá Húsadal er unnt að fara merktar gönguleiðir í ýmsar áttir. Stutt leið er í Sóttarhelli, Markarfljótsgljúfur og Sönghelli svo eitthvað sé nefnt. Stígur er af Valahnjúki niður í mynni Langadals. Þaðan má fara inn dalinn yfir í Húsadal eða yfir Krossá á göngubrú undir Valahnjúki yfir í Goðaland og Bása. Upp úr botni Húsadals er greiðust leið yfir í Hamraskóga og þaðan áfram „Laugaveginn“ sem er 50 km stikuð gönguleið yfir í Landmannalaugar. Einnig er góð gönguleið úr botni Húsadals yfir Slyppugilshrygg og áfram meðfram Tindfjallagili að Tröllakirkju en þaðan er góð leið á Rjúpnafell og Mófell. Hægt er að halda áfram hringinn og koma niður Stangarháls og ganga aurana meðfram Krossá yfir í Langadal.

Gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur er meðal vinsælustu gönguleiða á Íslandi enda löngum nefnd „Laugavegurinn“ .

Gistimöguleikar í Húsadal:

Merkursel

Á neðri hæðinni eru fimm kojur fyrir tíu manns, eitt herbergi með einni koju fyrir tvo, eldunaraðstaða með nauðsynlegustu áhöldum og borðbúnaði fyrir um 35 manns. Einnig er þar salernisaðsta ða. Á svefnlofti geta tuttugu manns sofið á dýnum.
Samtals er gistirými fyrir 32.

Hamrasel

Skálinn Vestri skiptist í þrjú herbergi, tvö innri herbergin eru með fjórar kojur hvort, samtals fyrir 16 manns. Í framherberginu eru fjórar tvíbreiðarkojur fyrir átta til sextán manns, fer eftir því hvort einn eða tveir eru í hverju rúmi. Í þessu herbergi er einnig eldunaraðstaða með nauðsynlegustu áhöldum og borðbúnaði fyrir um 35 manns. Salernisaðstaða.
Samtals gistirými fyrir 24-32.

Engjasel

Skálinn Austri er með 13 tveggja manna herbergjum. Þar er bæði boðið upp á svefnpokagistingu og uppábúin rúm. Í húsinu er salernisaðstaða, en eldunaraðstaða er í Auraseli.
Samtals gistirými fyrir 26.

Smáhýsin Norðurgarður 1-8

Í Húsadal eru 8 smáhýsi sem taka 4-5 í gistingu hvert. Þegar komið er inn í forstofu er eldunaraðstaða á hægri hönd. Þar eru nauðsynlegustu eldhúsáhöld og borðbúnaður fyrir 6 manns, eldunarhella og vaskur með köldu vatni. Fyrir innan er herbergi með tveimur kojum, neðra rúmið í annarri kojunni er tvíbreitt. Í herberginu er einnig borð og stólar fyrir 6 manns.
Í húsunum öllum er því samtals gistirými fyrir allt að 40 manns.

Veitingahúsið Dalsel

Í Húsadal er veitingaskáli sem tekur um 120 manns í sæti. Þar er boðið upp á kaffi og léttar veitingar á hverjum degi, ásamt léttvíni og bjór. Einnig eru í boði veislur fyrir sérhópa.

Aðstöðuhúsið Aurasel
Þjónustuhús stendur við hliðina á veitingahúsinu Dalseli. Húsið skiptist í tvo hluta, öðru megin í húsinu er eldunaraðstaða fyrir einstaklinga og litla hópa með nauðsynlegustu eldhúsáhöldum og borðbúnaði fyrir um 25-30 manns. Í hinum hluta hússins eru salerni, sturtur og gufubað.

Upplýsingar um bókanir og verð má finna með því að smella hér eða hringja  í síma 552 8300.
  • Reykjavík Excursions
  • BSI Bus Terminal
  • 101 Reykjavík
  • Phone: +354 580 5400
  • Fax: +354 552 3062
  • E-mail: main@re.is