My Cart

Your Cart is empty

Looks like you haven’t picked any tours yet!

Náttúrulaugar & heilsulindir

Náttúrulaugar á Íslandi

Þótt Ísland sé líklega eitt fallegasta land í heimi er ekki hægt að fara mjög fögrum orðum um veðráttuna. En þetta snýst ekki bara um útlitið því annar stór kostur við landið okkar er að sjálfsögðu jarðhitinn. Eitt af því sem Íslendingar búsettir erlendis sakna hvað mest frá heimalandinu er hitinn og þá er enginn að tala um lofthitann. Á fjölmörgum stöðum um landið sameinast svo þessir tveir stórfenglegu kostir, náttúrufegurð og jarðhiti, í hinum óviðjafnanlegu náttúrulaugum landsins. Sumir baða sig í hlýjum pollum eða heitum ám, aðrir vilja standa í notalegri sturtu undir heitum fossi og hinir kunna að meta sjónarspilið þar sem heitt vatnið flæðir upp úr jörðinni. Á endanum er jarðhitinn ein stærsta auðlind Íslendinga og full ástæða til að njóta hans hvar sem færi gefst.

Heilsulindir á Íslandi

Þau eru fá þéttbýlin á Íslandi sem bjóða ekki upp á að minnsta kosti eina sundlaug og alltaf skal þeim fylgja heitur pottur. Það er í raun reyndar erfitt að greina á milli hvort sé mikilvægara, sundlaugin eða heiti potturinn. Þeir sem ferðast um landið hafa varla heimsótt áfangastað fyrr en þeir hafa setið í heita pottinum og gefið sig á tal við heimamenn. Að láta líða úr sér í kjörhitastigi innan um malandi mannskapinn hlýtur að vera notalegasta þjóðaríþrótt allra tíma. Íslendingar hafa fært þetta menningarfyrirbæri sitt upp á nýtt plan með fyrsta flokks heilsulindum sem finna má orðið um allt land. Þar ræður lúxus ríkjum og áherslan er öll á afslöppun og heilnæmi. Gerðu eitthvað gott fyrir líkama og sál og fylltu á tankana í dásamlegri heilsulind.

Náttúrulaugar & heilsulindir

35 Tours

The hot springs of Iceland

Iceland, despite its name, isn’t nearly as cold as people think it is. We benefit a great deal from the Gulf stream but our favourite source of warmth comes from the ground, not the sea. The geothermal activity in Iceland means there is an abundance of hot water here, used to heat up our homes, showers and pools. But Mother Nature also makes a little show of it in the form of natural pools, hot springs or geysers.

Areas of high geothermal activity are usually accompanied by thick columns of vapour and the smell of sulphur or an egg sandwich past its prime. Despite the smell, seeing a geyser erupt is a great reminder of the awesome natural forces that rule these parts.

Natural pools are just streams, springs or ponds of geothermal water that happen to range in the perfect bathing temperature, from 30-40°C. They usually don’t have any man-made structure and very few have any facilities, so bathing in a natural pool is an authentic, natural experience if there ever was one. The geothermal activity is after all, what makes Iceland so warm and habitable and saved generations of our ancestors from freezing to death.

The pools of Iceland

A town without a swimming pool is a rare thing in Iceland. Nearly every tiny little place has one. Pools are a staple in Icelandic culture, a place to meet your friends and neighbours and catch up on politics and news in the hot tub. As a result, Icelanders take their pools quite seriously which means that the number of luxury spa-like pools is incredibly high for such a tiny population. Choose between the world-famous Blue Lagoon spa or a newer addition to this party, like the brand-new Reykjaböð Hot Springs or the geothermal Sky Lagoon spa. Whatever you do, you cannot leave Iceland without taking a rejuvenating dip into our geothermal waters.